5. sæti

Tanja
Tómasdóttir

Um mig

Ég heiti Tanja Tómasdóttir, ég er 29 ára og bý á Reyðarfirði. Ég starfa hjá Kaldvík og er gift Sturlu Má Helgasyni. Saman eigum við eitt barn og auk þess hef ég verið svo heppin að fá yndislegan stjúpson sem hefur verið hluti af lífi mínu í níu ár. Í frítímanum nýt ég þess að fara á skíði og verja tíma með fjölskyldu og vinum. 

Ég býð mig fram vegna þess að mér þykir vænt um samfélagið okkar og vil leggja mitt af mörkum til að bæði fólkið og fyrirtækin í Fjarðabyggð fái að dafna. Fyrir mér skiptir máli að vinna í nánu samstarfi við íbúa, hlusta á ólíkar raddir og leggja áherslu á skýra og ábyrga vinnu í þágu samfélagsins. Ég met það mikils að fá þetta tækifæri til þess að leggja mitt að mörkum fyrir samfélagið.

Heyrðu í mér

Við leggjum ríka áherslu á að vera alltaf í góðu talsambandi við íbúa. Hafðu samband eða fylgdu mér á samfélagsmiðlum.

Taktu sæti á póstlista

Fálkinn er frábær bréfdúfa. Megum við senda þér fréttabréf af og til?

Takk fyrir að taka sæti á (póst)listanum okkar!