9. sæti
Anton Berg Sævarsson
Um mig
Ég heiti Anton Berg Sævarsson og er uppalinn á Eskifirði. Ég lauk námi sem húsasmiður með viðbótarstúdent frá Verkmenntaskólanum á Austurlandi og stunda nú hagfræðinám við Háskólann í Reykjavík. Ég stefni á að flytja aftur heim að námi loknu og tel mikilvægt að fleiri ungir Austfirðingar sjái sér sömu framtíð - að Fjarðabyggð sé raunhæfur og spennandi kostur til að búa, starfa og stofna fjölskyldu.
Ég hef lengi tekið virkan þátt í samfélagsmálum. Ég er annar varaformaður Sambands ungra sjálfstæðismanna, formaður Hávarr – félags ungra sjálfstæðismanna í Fjarðabyggð – og var formaður Ungmennaráðs Fjarðabyggðar á árunum 2019–2020. Ég hef einnig starfað í félagsmiðstöðvum sveitarfélagsins og tekið virkan þátt í íþróttastarfi, sem hefur gefið mér góða innsýn í aðstæður og tækifæri barna og ungmenna í Fjarðabyggð.
Ég býð mig fram vegna þess að ég vil leggja mitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar í Fjarðabyggð. Sérstaklega vil ég beita mér fyrir bættum tækifærum fyrir ungt fólk, öflugu íþrótta og æskulýðsstarfi og samfélagi þar sem fleiri sjá sér framtíð til að búa og starfa.
Fjarðabyggð stendur vel að vígi með sterkum atvinnugrunni, góðri þjónustu við barnafjölskyldur og öflugu samfélagi. Nú þurfum við að halda áfram á þeirri braut og skapa enn fleiri tækifæri fyrir næstu kynslóð. Ég vil leggja áherslu á ábyrga fjármálastjórn, áframhaldandi uppbyggingu atvinnulífs og þjónustu og skýra framtíðarsýn fyrir sveitarfélagið okkar.
Markmið mitt er að vinna af heilindum fyrir samfélagið sem ég ólst upp í og taka virkan þátt í að móta framtíð Fjarðabyggðar – samfélag þar sem gott er að alast upp, búa og snúa heim aftur í.
Heyrðu í mér
Við leggjum ríka áherslu á að vera alltaf í góðu talsambandi við íbúa. Hafðu samband eða fylgdu mér á samfélagsmiðlum.