10. sæti

Ingunn Eir Andrésdóttir

Um mig

Ég heiti Ingunn Eir Andrésdóttir og er alin upp á Eskifirði. Ég er gift Páli Jónssyni deildarstjóra þjónustudeildar hjá Vegagerðinni og saman eigum við þrjú börn. Mér er annt um samfélagið okkar og fólkið sem hér býr og þess vegna býð ég mig fram.

Ég er menntaður fiskeldis- og viðskiptafræðingur og er að ljúka MS-prófi í mannauðsstjórnun í sumar. Ég er einnig iðnmeistari í snyrtifræði og rak snyrtistofu á Eskifirði í fjölda ára.

Ég vil leggja áherslu á að auka samheldni, efla atvinnulíf og skapa fleiri tækifæri. Sem foreldri hugsa ég sérstaklega til barnanna okkar og þeirra tækifæra sem við sköpum þeim til framtíðar. Mér finnst mikilvægt að fólki líði vel hér í Fjarðabyggð og vil leggja mitt af mörkum til að stuðla að aukinni vellíðan og styrkja samfélagið okkar.

Greinar eftir mig

10. mars

Með atvinnu­upp­byggingu og ábyrgri fjármála­stjórn eflum við inn­viði til fram­tíðar

Heyrðu í mér

Við leggjum ríka áherslu á að vera alltaf í góðu talsambandi við íbúa. Hafðu samband eða fylgdu mér á samfélagsmiðlum.

Taktu sæti á póstlista

Fálkinn er frábær bréfdúfa. Megum við senda þér fréttabréf af og til?

Takk fyrir að taka sæti á (póst)listanum okkar!