16. sæti
Íris Katla Guðmundsdóttir
Um mig
Íris Katla heiti ég og er fædd og uppalin í Laugardalnum í Reykjavík. Eftir menntaskóla hélt ég til Norður Karólínu í Bandaríkjunum þar sem ég fékk íþróttastyrk til náms við Queens Univerity of Charlotte og spilaði ég þar golf fyrir lið skólans í 3 ár. Ég fann það fljótlega að hjartað mitt leitaði alltaf heim til Íslands og þegar ég útskrifast með BSc gráðu í Umhverfisvísindum árið 2015 kom ég beint heim.
Stuttu eftir heimkomu kynnist ég manni mínum Haraldi Mími Bjarnasyni sem á ættir að rekja til Norðfjarðar. Alveg frá því að ég kom hingað austur fyrst hef ég hrifist af dugnaði og hugarfari austfirðinga sem allir hafa boðið mig velkomna inn í samfélagið. Sumarið 2025 létum við verða af því að flytja austur með börnin okkar tvö þar sem að við sáum fyrir okkur að líða vel í rólegra umhverfi en sáum einnig tækifæri á að uppfylla sameiginlegan draum um að byggja okkur hús.
Hér í Fjarðabyggð eru ýmis tækifæri sem bjóðast ekki í stærri byggðarkjörnum. Oft gleymist það í amstri dagsins að sjá það sem gott er, en verandi utanaðkomandi sér maður oft hlutina í öðru ljósi. Ég býð mig fram vegna þess að ég var hvött til þess að koma mínum sjónarmiðum fram og hafa áhrif með þeim hætti. Ég brenn fyrir nýsköpun og vil beita mér fyrir því að fá hingað austur fleiri „utanaðkomandi“ vegna þess að hér er nóg af tækifærum, nóg af atvinnu og ég trúi því að hér í Fjarðabyggð sé betra að búa.
Heyrðu í mér
Við leggjum ríka áherslu á að vera alltaf í góðu talsambandi við íbúa. Hafðu samband eða fylgdu mér á samfélagsmiðlum.