1. sæti

Ragnar
Sigurðsson

Um mig

Ragnar Sigurðsson skipar 1. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð. Hann býr á Reyðarfirði og starfar sem framkvæmdastjóri K-Tech. Ragnar er lögfræðingur með meistaragráðu í viðskiptafræði og hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífi og opinberri stjórnsýslu.

Ragnar hefur setið í bæjarstjórn sem aðalmaður frá árinu 2022, en þar á undan tók hann sæti sem varabæjarfulltrúi. Hann gegnir jafnframt hlutverki formanns bæjarráðs og er formaður sveitarstjórnarráðs Sjálfstæðisflokksins. Þá var hann varaþingmaður fyrir Norðausturkjördæmi á síðasta kjörtímabili.

Ragnar býður sig fram vegna þess að hann telur mikilvægt að halda áfram þeirri vegferð sem hófst þegar Sjálfstæðisflokkurinn axlaði ábyrgð og tók sæti í meirihluta árið 2024. Hann vill byggja á þeim árangri sem náðst hefur, styrkja rekstur sveitarfélagsins enn frekar og skapa aukið svigrúm til uppbyggingar. Ragnar leggur sérstaka áherslu á atvinnuuppbyggingu, eflingu innviða og að Fjarðabyggð verði áfram öflugt og samkeppnishæft samfélag með fjölbreytt tækifæri fyrir íbúa og fyrirtæki.

Áhugamál Ragnars tengjast meðal annars útivist, íþróttum og fjölskyldulífi. Að hans mati verður Fjarðabyggð best byggð upp með ábyrgum ákvörðunum, samstöðu og metnaði til að ná árangri til framtíðar.

Greinar eftir mig

1. apríl

Fjár­festum í verð­mæta­sköpun

3. mars

Heilbrigðisþjónustan í Neskaupstað og ábyrg umræða

21. nóvember

Að snúa rekstri til betri vegar

Heyrðu í mér

Við leggjum ríka áherslu á að vera alltaf í góðu talsambandi við íbúa. Hafðu samband eða fylgdu mér á samfélagsmiðlum.

Taktu sæti á póstlista

Fálkinn er frábær bréfdúfa. Megum við senda þér fréttabréf af og til?

Takk fyrir að taka sæti á (póst)listanum okkar!