17. sæti

Sigurjón Rúnarsson

Um mig

Ég er 53 ára sjúkraþjálfari, uppalinn á Reyðarfirði og bý þar ásamt eiginkonu minni, Rebekku Rán Egilsdóttur og tveimur drengjum okkar, þeim Rúnari og Aroni.  Auk þeirra á ég þrjú eldri börn,  Almar Blæ, Bríeti og Þór og eitt afabarn, hana Matteu Myrk.

Samfélagið hér er mér mjög kært og vil ég leggja mitt af mörkum til að enn frekar sé hægt að bæta það og efla.

Íþrótta- og tómstundamál eru mér mjög hugleikin sem og fjölskyldumál almennt og tel ég uppbyggingu á því sviði mikilvæga fyrir framtíð, áframhaldandi uppbyggingu og styrkingu sveitarfélagsins. 

Mikilvægt er að stuðla enn frekar að uppbyggingu atvinnulífs á svæðinu og leggja þar áherslu á fjölbreytni.  Styðja þarf við þau fyrirtæki sem fyrir eru og liðka fyrir uppbyggingu nýrra.  

Gera þarf Fjarðabyggð sýnilegri, bæta í varðandi kynningu á öllum þeim kostum sem svæðið hefur upp á að bjóða, auka samvinnu og samstöðu innan sveitarfélagsins og bæta samgöngur milli byggðakjarna. 

Heyrðu í mér

Við leggjum ríka áherslu á að vera alltaf í góðu talsambandi við íbúa. Hafðu samband eða fylgdu mér á samfélagsmiðlum.

Taktu sæti á póstlista

Fálkinn er frábær bréfdúfa. Megum við senda þér fréttabréf af og til?

Takk fyrir að taka sæti á (póst)listanum okkar!