14. sæti

Sölvi Guðmundar­son

Um mig

Ég heiti Sölvi Guðmundarson er fæddur og uppalinn á Hellu í Rangárvallasýslu. Ég hef verið búsettur á Breiðdalsvík síðastliðin tvö ár, kærasta mín er Lilja Björk Bjarkadóttir og samtals eigum við 5 dætur og fyrsta afa og ömmu stelpan væntanleg í júlí. Ég starfa sem aðstoðar hótelstjóri á Hótel Breiðdalsvík ásamt því að sjá um viðhald fasteigna, einnig sit ég í stjórn íþróttafélagsins Hrafnkels Freysgoða. Áhugamál eru fótbolti, hreyfing og fjölskyldusamvera.

Ég gef kost á mér til að styðja við öfluga uppbyggingu um alla Fjarðabyggð, þar sem ég legg sérstaka áherslu á framtíð Grunn- og leikskólamála og bættar samgöngur á milli byggðarkjarna í nánu samstarfi við íbúa Fjarðabygðar. Með hag komandi kynslóða að leiðarljósi vil ég vinna að því af festu að tryggja framúrskarandi menntun og örugga innviði sem gera sveitarfélagið okkar að fyrsta valkosti fyrir fjölskyldur.

Setjum X við D fyrir ábyrgri framtíð í Fjarðabyggð.

Heyrðu í mér

Við leggjum ríka áherslu á að vera alltaf í góðu talsambandi við íbúa. Hafðu samband eða fylgdu mér á samfélagsmiðlum.

Taktu sæti á póstlista

Fálkinn er frábær bréfdúfa. Megum við senda þér fréttabréf af og til?

Takk fyrir að taka sæti á (póst)listanum okkar!