7. sæti

Bryngeir Ágúst Margeirsson

Um mig

Ég heiti Bryngeir Ágúst Margeirsson, Ég er 33 ára, fæddur og uppalinn á Stöðvarfirði. Ég starfa sem afgreiðslustjóri hjá Eimskip í Fjarðabyggð. Ég bý á Reyðarfirði ásamt eiginkonu minni Guðrúnu Maríu Ásgeirsdóttir sem er sálfræðinemi og þremur börnum okkar, þeim Angelu Ósk, Borgþóri Ágústi og Arnþóri Ásgeiri.

Ég nýt þess að vera með fjölskyldunni og ferðast um landið, smíða og brasa með börnunum mínum og vera á verkstæðinu hjá föður mínum á Stöðvarfirði.

Ég býð fram krafta mína til að hjálpa við að byggja upp öflugt samfélag og sterkt sveitafélag þar sem ungt fólk vill setjast að og verða partur af framtíð sveitafélagsins, þar sem er gott að eldast og njóta þess að búa á efri árum ævinnar.

Atvinnulífið skiptir mig miklu máli og að það fái að stækka og dafna með aðstoð sveitafélagsins en ekki svo að sveitafélagið sé hindrun sem þarf að yfirstíga.

Komandi frá hinum fallega Stöðvarfirði liggur mér einna mest á hjarta að samgöngur séu alltaf baráttumál hjá hverri bæjarstjórn sem situr hverju sinni. Þar finnst mér suðurfjarðavegur vega þungt og ætti ekki að líða sá mánuður þar sem ekki er barist fyrir bótum þar á.

Greinar eftir mig

15. apríl

Krefjumst að­gerða vegna Suður­fjarðavegar

Heyrðu í mér

Við leggjum ríka áherslu á að vera alltaf í góðu talsambandi við íbúa. Hafðu samband eða fylgdu mér á samfélagsmiðlum.

Taktu sæti á póstlista

Fálkinn er frábær bréfdúfa. Megum við senda þér fréttabréf af og til?

Takk fyrir að taka sæti á (póst)listanum okkar!