6. sæti
Friðrik Júlíus Jósefsson
Um mig
Friðrik Júlíus Jósefsson skipar 6. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð. Friðrik er 26 ára gamall og er búsettur á Stöðvarfirði. Þar ólst hann upp en flutti síðan norður á Akureyri og sótti nám við Verkmenntaskólann á Akureyri þar sem hann náði sér í sveinspróf í húsasmíði.
Eftir fimm ára viðveru bæði í skóla og vinnu á Akureyri voru taugarnar heim á Stöðvarfjörð orðnar sterkari og flutti hann aftur heim árið 2020 og hóf störf í kerskála Alcoa Fjarðaál. Áform hans voru að vinna yfir sumarið og fara síðan erlendis og feta sig þar. En heimsfaraldur kom í veg fyrir það svo hann skráði sig til náms við Byggingariðnfræði í Háskólann í Reykjavík og stundaði það ásamt fullri vinnu í Alcoa.
Eftir góð þrjú ár á Stöðvarfirði, vinnu í Alcoa og útskrift úr HR leitaði hugurinn ekki út í heim, heldur í heimabyggðina. Hér vill hann festa sínar rætur. Á Stöðvarfirði, í Fjarðabyggð. Svo hann lagði allt undir og stofnaði Stöðfirzka byggingafélagið ehf. árið 2023 og rekur það með góðu móti. Friðrik telur að það skiptir gríðarlega miklu máli fyrir smærri byggðarkjarna sveitarfélagsins að ef einstaklingur hefur seiglu og metnað til að lyfta sínu nærsamfélagi upp með verki og vinnu að þá er það þín samfélagslega skylda að stíga upp og leggja sitt af mörkum.
Eftir heimkomuna hefur Friðrik gegnt ýmsum trúnaðarstörfum. Tók hann við keflinu sem gjaldkeri Umf Súlunnar af föður sínum, sat m.a í stjórn KFA einn vetur sem stjórnarmaður frá aðildarfélagi, er í stjórn íbúasamtakana á Stöðvarfirði, hlutastarfandi slökkviliðsmaður á Stöðvarfirði og er varaformaður Hávarr félags ungra Sjálfstæðismanna í Fjarðabyggð.
Friðrik býður sig fram með þá sýn að efla samstarf byggðakjarna Fjarðabyggðar, ábyrgum ákvarðanatökum í skipulagi og fjármálum getum við haldið áfram að byggja upp sterkara og öflugra samfélag hér í Fjarðabyggð. Einnig telur hann að það sé lykilatriðið að sveitarfélagið skapi þær aðstæður þar sem ungt fólk sjái sér hag í að setjast hér að, snúi heim að námi loknu eða flytji hingað til starfa. Friðrik vill leggja sitt af mörkum til að tryggja að í öllum byggðakjörnum séu góð tækifæri - bæði fyrir ungt og efnilegt fólk sem og alla aðra íbúa sveitarfélagsins.
Heyrðu í mér
Við leggjum ríka áherslu á að vera alltaf í góðu talsambandi við íbúa. Hafðu samband eða fylgdu mér á samfélagsmiðlum.