13. sæti
Guðný Margrét Bjarnadóttir
Um mig
Ég heiti Guðný Margrét Bjarnadóttir 46 ára Eskfirðingur, gift Björgvini Antonssyni og eigum við 3 börn Evu Björk 24 ára, Tómas Atli 20.og Arnar Bjarki og 19 ára.
Ég hef starfað sem kennari í yfir 20 ár og samhliða því sem skíðaþjálfari, unnið í félagsmiðstöð og í æskulýðs- og íþróttamálum í Fjarðabyggð. Þessi starfsvetvangur hefur kennt mér eitt og annað um það hvað þarf til að börn og ungmenni dafni – og hvað samfélag þarf að leggja af mörkum.
Öflugt skóla-, íþrótta- og æskulýðsstarf stuðlar að bættri líðan barna og ungmenna. Í því starfi læra þau samvinnu og seiglu – eiginleika sem þau fara með út í lífið sem sterkir einstaklingar. Þátttaka barna í skipulögðum tómstundum tryggir samveru við jafnaldra og hefur jafnframt mikilvægt forvarnagildi, sem styrkir börn félagslega og persónulega.
Þetta starf verðum við að styrkja og gera öllum kleift að taka þátt – óháð efnahag eða aðstæðum.
Ég vil að félagsmiðstöðvar verði stærri hluti af daglegu lífi barna og ungmenna í Fjarðabyggð – staðir þar sem þau hittast, brasa saman og mynda tengsl. Það sem ég man best frá mínum uppvaxtarárum á Eskifirði er félagsmiðstöðin Knellan, sem var nánast heimili allra unglinga á bænum. Þar var verið að læra saman, spila, dansa og hafa gaman – og þar varð til samfélag.
Við þurfum að endurskapa þann styrk og þann hlýja vettvang fyrir næstu kynslóð.
Framtíð barnanna er framtíð samfélagsins
Það þarf heillt þorp að ala upp barn. Ég trúi á þá setningu af heilum hug og mun beita mér fyrir því í sveitarstjórn að framtíð barna okkar í Fjarðabyggð sé tryggð – í skóla, í íþróttum, í tómstundum og í samfélaginu í heild.
Heyrðu í mér
Við leggjum ríka áherslu á að vera alltaf í góðu talsambandi við íbúa. Hafðu samband eða fylgdu mér á samfélagsmiðlum.