8. sæti
Hildur Ósk Pétursdóttir
Um mig
Ég heiti Hildur Ósk og bý á Fáskrúðsfirði ásamt maka mínum og þremur börnum. Ég starfa í leikskóla og gegni nú starfi leikskólastjóra. Ég er með meistaragráðu í leikskólakennarafræði. Í starfi mínu hef ég séð hversu mikilvægt er að byggja upp traust, hlusta á fólk og vinna saman að því að skapa samfélag þar sem öllum líður vel.
Ég býð mig fram vegna þess að mig langar að leggja mitt af mörkum til samfélagsins okkar. Ég brenn fyrir velferð barna og fjölskyldna, menntun og því að skapa góð skilyrði fyrir fólk til að búa og starfa hér í Fjarðabyggð. Íþróttir barna standa mér einnig nærri og mér finnst mikilvægt að öll börn hafi jöfn tækifæri til þátttöku.
Ég vil vinna með opnum og heiðarlegum hætti þar sem raddir íbúa fá að heyrast og samvinna er höfð að leiðarljósi. Með því að hlusta á fólk og vinna saman getum við haldið áfram að byggja upp sterkt samfélag til framtíðar.
Saman getum við haldið áfram að gera gott samfélag enn betra.
Greinar eftir mig
9. mars
Lausnir skipta meira máli en slagorð
Heyrðu í mér
Við leggjum ríka áherslu á að vera alltaf í góðu talsambandi við íbúa. Hafðu samband eða fylgdu mér á samfélagsmiðlum.