4. sæti
Húnbogi Sólon Gunnþórsson
Um mig
Ég heiti Húnbogi Sólon Gunnþórsson, er 31 árs og starfa sem verkefnastjóri hjá Síldarvinnslunni. Ég bý í Neskaupstað ásamt Eydísi Elvu Gunnarsdóttur og eigum við saman tvö börn, Birni Jökull og Melkorku Þöll.
Í frítíma mínum nýt ég þess að stunda útivist, hvort sem það er veiði, golf eða skíði á veturna. Þá finnst mér einnig mikilvægt að verja tíma með fjölskyldunni og ferðast um landið.
Ég býð fram krafta mína fyrir sveitarfélagið vegna þess að ég tel Fjarðabyggð búa yfir miklum sóknartækifærum. Það er frábært að búa og alast upp hér og eftir nám var ég staðráðinn í að snúa aftur heim.
Atvinnulífið okkar er sterkt og tækifærin fjölmörg til að efla það enn frekar, meðal annars í fiskeldi, ferðaþjónustu og öðrum vaxandi greinum. Það er nauðsynlegt að halda áfram að laða fólk til okkar og skapa umhverfi þar sem fólk vill setjast að.
Ég tel öflugt tómstunda- og íþróttastarf vera lykilatriði fyrir lífsgæði íbúa og gerir sveitarfélagið eftirsóknarverðara til búsetu. Nauðsynlegt er að efla og hlúa að íþróttamannvirkjunum okkar. Má þar sérstaklega nefna skíðasvæðið okkar Oddskarð sem gegnir mikilvægu hlutverki og er aðdráttarafl fyrir bæði íbúa og gesti.
Markmið mitt er að leggja mitt af mörkum til að gera Fjarðabyggð að enn betri stað til að búa og starfa á – þannig byggjum við upp öflugt og sjálfbært samfélag til framtíðar.
Heyrðu í mér
Við leggjum ríka áherslu á að vera alltaf í góðu talsambandi við íbúa. Hafðu samband eða fylgdu mér á samfélagsmiðlum.