2. sæti
Kristinn Þór Jónasson
Um mig
Ég er Kristinn Þór Jónasson og bý á Eskifirði, er þjónustustjóri Eimskip á Mjóeyrarhöfn Reyðarfirði, og á tvo syni sem eru 21 og 26 ára.
Ég býð mig fram af því ég tel Fjarðabyggð eiga mikið inni þegar kemur að vexti og bættum lífsgæðum fyrir íbúana, og ég vil vinna fyrir samfélagið okkar, bæta og styrkja til framtíðar. Það þarf að sýna aukinn metnað í ferðaþjónustu, nýsköpun, og meiri fjölbreytni starfa í atvinnulífinu, bæta samgöngur, styðja og hvetja krakka til að taka þátt í íþróttum, tómstundum og félagastarfi, en minnkandi áhugi barna þar er mikið áhyggjuefni sem þarf að taka alvarlega.
Ég er mjög upptekinn af því að aðstoða, leiðbeina og vera með í að koma verkefnum af stað sem auka og bæta fjölbreytni og gæði íbúa Fjarðabyggðar í störfum, íþróttum, tómstundum, afþreyingu og menningu á svæðinu, og er ég sjálfur einn af stofnendum Rafíþróttadeildar Austra, Hljómsveitar/upptökuaðstöðunnar Holunnar, Siglingaklúbbs Austurlands, Bæjarhátíðarinnar Útsæðið, Valhöll bíó, og er svo einnig í stjórnum Vina Valhallar, Sjómannadagsráðs Eskifjarðar, BigJump skíðabrettahátíðarinnar, Skógræktarfélags Eskifjarðar ásamt því að vera í hollvinasamtökunum Vinir Oddsskarðs
Mín helstu áhugamál eru ljósmyndun, ganga um fjöllin, allskonar vatnasport og grilla... og vinna við poppvélina í Valhöll.
Byggjum Fjarðabyggð upp með jákvæðri umræðu og verkum, sem styrkja og bæta líf okkar íbúanna til framtíðar.
Heyrðu í mér
Við leggjum ríka áherslu á að vera alltaf í góðu talsambandi við íbúa. Hafðu samband eða fylgdu mér á samfélagsmiðlum.