3. sæti

Þórdís Mjöll Bene­dikts­dóttir

Um mig

Ég er Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, leikskólastjóri, tveggja barna móðir og unnusta Aðalsteins Inga Magnússonar framleiðslustarfsmanns í Alcoa. Ég er jarðbundin og heiðarleg manneskja sem brenn fyrir því að byggja upp sterkt og samstillt samfélag. Mér finnst mikilvægt að nálgast verkefni af hlýju, ábyrgð og virðingu.

Ég býð mig fram vegna þess að mér finnst skipta máli að raddir íbúanna heyrist. Ég vil stuðla að skýrum, sanngjörnum og uppbyggilegum ákvörðunum sem þjóna heildinni og styrkja framtíðina. Ég vil leggja áherslu á að byggja á samvinnu fremur en átökum, hugsa til framtíðar og velja lausnir sem skapa öryggi og stöðugleika fyrir börnin okkar. 

Ég legg mig fram í öllu sem ég geri og trúi á að góð samskipti, hlýja og manngæska séu lykillinn að árangri. Ég vil skapa jákvætt og traust samband við þá sem ég vinn fyrir.

Ég er tilbúin að leggja mig fram, vinna fyrir íbúana af heilindum og vera málsvari þeirra sem vilja jákvæða þróun og traustan grunn fyrir framtíðina.

Greinar eftir mig

9. mars

Lausnir skipta meira máli en slagorð

Heyrðu í mér

Við leggjum ríka áherslu á að vera alltaf í góðu talsambandi við íbúa. Hafðu samband eða fylgdu mér á samfélagsmiðlum.

Taktu sæti á póstlista

Fálkinn er frábær bréfdúfa. Megum við senda þér fréttabréf af og til?

Takk fyrir að taka sæti á (póst)listanum okkar!