12. sæti
Sóley Katrín Heiðarsdóttir
Um mig
Ég heiti Sóley Katrín Heiðarsdóttir og er 22 ára Reyðfirðingur með B.s gráðu í sjávarútvegsfræði frá Háskólanum á Akureyri. Helstu áhugamálin mín eru að dunda mér í eldhúsinu, útivist, hreyfing og að eyða tíma með fjölskyldu og vinum. Árin 2022-2025 bjó ég á Akureyri og stundaði nám við Háskólann á Akureyri. Síðasta sumar flakkaði ég um landið með Sjávarútvegsskólann og flutti svo heim síðasta haust þar sem ég fékk starf hjá Eimskip á Reyðarfirði. Þar hef ég kynnst og unnið með frábæru fólki og fengið betri innsýn í hversu fjölbreytt og spennandi atvinnulífið er í Fjarðabyggð.
Ég brenn fyrir það að unga fólkið okkar sem fer í nám hafi raunverulega tækifæri til að koma heim að námi loknu - þess vegna býð ég mig fram – til þess að leggja mitt af mörkum, styðja við unga fólkið okkar og taka þátt í að þróa og efla samfélagið okkar hér í Fjarðabyggð.
Heyrðu í mér
Við leggjum ríka áherslu á að vera alltaf í góðu talsambandi við íbúa. Hafðu samband eða fylgdu mér á samfélagsmiðlum.