Við gerum það sem við segjum!

Á þeim tveimur árum sem liðin eru síðan við settumst í meirihluta í Fjarðabyggð höfum við komið eftirtöldum málum í gegn. Við tókum ábyrgð þegar fyrri meirihluti sprakk og létum verkin tala. Við viljum halda áfram og fara á fulla ferð!

Atvinnulíf

Grænn Orku­garður

Full­fjár­magnað verkefni á vegum CIP. Fyrir­hugað er að reisa vetnis­verksmiðju til fram­leiðslu elds­neytis fyrir skipa­flutninga.

Atvinnulíf

Laxeldi í Mjóa­firði

Bæjar­ráð hefur barist fyrir út­gáfu eldis­leyfa til lax­eldis í Mjóa­firði með þeim árangri að stefnt er að út­boði eldis­leyfa strax í ár.

Atvinnulíf

Upp­bygging ferða­manna­staða

Mark­viss sam­vinna við Fram­kvæmda­sjóð ferða­manna­staða að fram­kvæmdum við Bleiksár­foss, Búðarár­foss og Streitis­hvarf.

Atvinnulíf

Hafnar­sjóður í sjálf­stætt félag

Unnið hefur verið að því að breyta hafnar­sjóði í sjálf­stætt félag í 100% eigu sveitar­félagsins. Arð­greiðslur skila sér í niður­greiðslu skulda.

Eldri borgarar

Íbúða­upp­bygging fyrir 60 ára og eldri

Byggðar hafa verið minni íbúðir með aðgengi fyrir eldra fólk. Fram­kvæmdir við fleiri íbúðir fyrir eldra fólk eru að hefjast.

Atvinnulíf

Sæbjúgna­vinnsla á Stöðvar­firði

Hafið er samtal um upp­byggingu sæbjúgna­verk­smiðju á Stöðvar­firði sem gæti skapað 8-10 störf í byggða­kjarnanum.

Atvinnulíf

Þjónustu­stöð lax­eldis í Stöðvar­firði

Áfram er unnið að því að tryggja starfsemi laxeldis á Stöðvarfirði.

Atvinnulíf

Fjarða­byggð mið­stöð olíu­leitar og vinnslu

Bæjar­ráð hvatti stjórn­völd til að stuðla að olíu­leit á Dreka­svæðinu að nýju. Fjarða­byggðar­hafnir yrðu þjónustu­miðstöð olíu­leitar.

Eldri borgarar

Sam­þætting heima­þjónustu og heima­hjúkrunar

Unnið hefur verið að sam­komu­lagi um sam­þættingu heima­þjónustu og heima­hjúkrun sem liður í verkefninu „Gott að eldast“.

Eldri borgarar

Ný hjúkrunar­rými í Nes­kaup­stað

Sveitarfélagið berst fyrir nýjum hjúkrunarrýmum í Neskaupstað.

Eldri borgarar

Öldunga­ráð eflt

Öldunga­ráð fundar nú mark­visst og við tryggðum ráðinu fjár­muni til að standa fyrir fræðslu- og upplýsinga­fundum fyrir eldri borgara.

Eldri borgarar

Húsnæðis­könnun fyrir 60 ára+

Framkvæmd var húsnæðis­könnun til að greina þarfir íbúa yfir sex­tugu  í húsnæðis­málum til að ýta undir uppbyggingu.

Eldri borgarar

Endur­bætur á Upp­sölum

Krafa um endur­nýjun Upp­sala í Fáskrúðs­firði. Búið er að teikna og kostnaðar­meta endur­bætur. Ítrekuð sam­töl við ríkið um að koma endur­bótum á áætlun.

Eldri borgarar

Stækkun Huldu­hlíðar tryggð

Sam­komu­lag um tvö­földun Huldu­hlíðar í höfn.

Eldri borgarar

Fjölgun hjúkrunar­rýma

Upp­bygging hjúkrunar­rýma komin á dagskrá.

Eldri borgarar

Fjár­mögnun dag­vistunar­rýma

10 dagvistunar­rýmum hefur verið út­hlutað til Fjarða­byggðar. Unnið er að út­færslu með HSA.

Fjármál

Lækkun skulda

Vaxta­berandi skuldir sveitar­félagsins hafa lækkað um 400 milljónir frá því að Sjálfstæðis­flokkurinn settist í meiri­hluta.

Fjármál

Sjálfbær rekstur

Ábyrg fjármálastjórn gerði árin 2024 og 2025 að bestu rekstrarárum í sögu Fjarðabyggðar.

Fjármál

Stjórnunar­kostnaður lækkaður

Með stjórn­kerfis­breytingum náðum við að lækka stjórnunar­kostnað um 50-60 milljónir árlega.

Fjármál

Fjár­mála­regla sett á

Fjármálaregla tryggir betri eftirfylgni með áætlunum sveitarfélagsins. Henni fylgir agi og ábyrgð.

Fjármál

Fækkun stöðugilda

Árið 2022 voru 423 stöðu­gildi hjá sveitar­félaginu en 378 nú. For­gangs­röðun verk­efna í tengslum við starfs­manna­veltu.

Hagsmunagæsla

Greining á Suður­fjarða­göngum

Unnið að kostnaðar­mati á Suður­fjarða­göngum.

Hagsmunagæsla

Sýni­leiki sveitar­félagsins aukinn

Auknir fjármunir settir í kynningar­mál og auglýsingar á sam­félags­miðlum.

Hagsmunagæsla

Barist fyrir Suður­fjarða­vegi og -göngum

Hagsmuna­barátta fyrir Suður­fjarða­vegi í fjöl­miðlum, með greina­skrifum og sam­tali við þing­menn og ráð­herra. Suður­fjarða­göng sett á kortið.

Húsnæðismál

Lægri fasteigna­gjöld

Við lækkuðum fast­eigna­gjöld árið 2025 úr 0,424% í 0,4% af fast­eigna­mati, sem er rúm­lega 5% lækkun. Við viljum lækka gjöldin enn meira.

Húsnæðismál

75% afsláttur á gatna­gerðar­gjöldum

75% af­slætti á gatna­gerðar­gjöldum hefur verið við­haldið til að örva húsnæðis­markaðinn í Fjarða­byggð.

Innviðir

Ljós­leiðari í öll heimili

Samið við Mílu um ljós­leiðara­tengingu allra heimila í Fjarða­byggð, íbúum að kostnaðar­lausu.

Innviðir

Upp­bygging ofan­flóða­varna

Ofan­flóða­varnar­fram­kvæmdum hefur verið flýtt sem og endur­bótum í Neskaup­stað.

Innviðir

Varnir við Grjótá

Útboð fer fram á næstu vikum. Unnið er að upp­kaupum mann­virkja. Eftir að út­boð fer fram verður áfram unnið að hönnun og skipu­lagi mið­bæjar Eski­fjarðar.

Innviðir

Saxað á upp­safnaða við­halds­þörf fast­eigna

Við höfum aukið fjár­festingar og við­hald sveitar­félagsins. Á árinu 2025 var fjár­fest fyrir 1,5 milljarða sem er það mesta á kjör­tíma­bilinu.

Innviðir

Upp­bygging göngu- og hjóla­stíga

Auknu fjár­magni veitt í göngu- og hjóla­stíga. Betur má ef duga skal.

Innviðir

Tvö­földun fjár­magns til gatna­gerðar

Við höfum tvö­faldað fram­lög til gatna­gerðar.

Innviðir

Fjölgun hleðslu­stöðva í öllum byggða­kjörnum

Samið um fjölgun hrað­hleðslu­stöðva í öllum byggða­kjörnum án kostnaðar fyrir sveitar­félagið.

Íþróttir og æskulýðsmál

Þak Fjarða­byggðar­hallar­innar einangrað

Lokið hefur verið við einangrun á þaki Fjarða­byggðar­hallar­innar.

Íþróttir og æskulýðsmál

Nýtt íþrótta­hús á Eski­firði

Fram­kvæmdir hefjast strax á þessu ári.

Íþróttir og æskulýðsmál

Endur­bætt Fjarða­byggðar­höll

Samið hefur verið við verk­taka um nýjan ljósa­búnað og kyndingu sem auka mun notkunar­mögu­leika og skapa betri upp­lifun.

Íþróttir og æskulýðsmál

Gert við topp­lyftu skíða­svæðisins

Brugðumst strax við bilun í topp­mastri í Odds­skarði og tryggðum opnun topp­lyftunnar.

Íþróttir og æskulýðsmál

Padel­völlur á Reyðar­firði

Gerður leigu­samningur við einka­aðila um padel­völl á Reyðar­firði. Þann fyrsta utan höfuð­borgar­innar.

Íþróttir og æskulýðsmál

Aukið að­gengi að líkams­rækt

Lengri opnunar­tíma líkam­sræktar­stöðva í Fjarða­byggð með lykla­lausu að­gengi utan hefð­bundins opnunar­tíma.

Mannlíf og fjölskylda

Stofnun fjöl­menningar­ráðs

Fjöl­menningar­ráð er vett­vangur sam­ráðs íbúa sem eru inn­flytjendur, atvinnu­lífs og sveitar­félagsins Fjarða­byggðar.

Mannlíf og fjölskylda

Tekið utan um nýja íbúa

Nýir íbúar boðnir velkomnir á svæðið með kynningarefni um sveitarfélagið og boðsmiðum á söfn og sundlaugar.

Mannlíf og fjölskylda

Píeta-starfs­stöð í Fjarða­byggð

Samið við Píeta um fasta við­veru, við­tals­tíma og for­varnir. Fjár­magn tvö­faldað vegna að­sóknar skjól­stæðinga og að­standenda fórnar­lamba sjálfs­víga.

Mannlíf og fjölskylda

Geð­ræktar­mið­stöð opnuð

Búið er að opna geð­ræktar­mið­stöð í Fjarða­byggð, sem er virkni­úr­ræði fyrir fólk sem hefur fallið af vinnu­markaði.

Mannlíf og fjölskylda

Íbúa­kjarni fyrir fatlaða opnaður

Skáli, nýr búsetu­kjarni fyrir fatlaða, hefur verið opnaður á Reyðar­firði auk aðstöðu fyrir skamm­tíma­vistun fjöl­fatlaðra barna.

Menning

Meira fjár­magn í menningu

Fjár­magn til menningar­mála hefur verið aukið og vinna hafin við endur­nýjun menningar­stefnu Fjarða­byggðar.

Menning

Bíó í Fjarðabyggð

Við stóðum við bakið á aðilum til að koma á kvikmyndahúsi á Eskifirði.

Menning

Endursamið um Sköpunar­mið­stöðina

Samið við ríkið, sem tryggir fjár­mögnun Sköpunar­miðstöðvarinnar til 2029.

Menning

Efling bæjar­hátíða

Aukið fjár­magn hefur verið sett í bæjar­hátíðir.

Menning

Fjöl­breyttari af­þreying með að­komu einka­aðila

Lögð hefur verið áhersla á að Menningar­stofa sé stoð­aðili við þá sem veita af­þreyingu og sjá um menningar­viðburði.

Menning

Upp­bygging Stríðs­ára­safns­ins

1. áfangi er hafinn og 2. áfangi hefst í fram­haldinu á þessu ári.

Menning

Lúð­víks­hús opnað

Lokið var við byggingu Lúðvíks­hús í Neskaup­stað, skjala- og ljós­mynda­safn Fjarða­byggðar. Vígsla fór fram árið 2026.

Skipulagsmál

Nýtt mið­bæjar­skipu­lag Eski­fjarðar

Tryggðir voru fjár­munir fyrir skipu­lag mið­bæjar Eski­fjarðar 2026. Þegar útboði á ofan­flóða­mann­virki Grjót­ár er lokið verður unnið að skipu­lagi og hönnun með íbúum.

Skipulagsmál

Miðbæjar­torg í Nes­kaup­stað

Framkvæmdir á mið­bæjar­reit við Egils­búð í Nes­kaup­stað hefjast í sumar.

Skipulagsmál

Nýr mið­bæjar­kjarni í Reyðar­firði

Lóðavinnu lokið í sam­vinnu við lóða­umsækjanda. Hönnunar­vinna er hafin og fram­kvæmdir hefjast á næsta ári.

Skólamál

Lokunar­dögum leik­skóla fækkað

Ófyrir­séðum lokunar­dögum leik­skóla hefur fækkað.

Skólamál

Sveigjan­leg leik­skóla­vistun

Komið hefur verið á sveigjan­legum vistunar­tíma barna í leik­skólum. Dregið hefur úr álagi á starfs­fólk og ófyrir­séðum lokunum fækkað.

Skólamál

Stækkun leik­skólans á Eski­firði

Ný við­bygging leik­skólans á Eski­firði var vígð árið 2025.

Stjórnsýsla

Opið bók­hald

Unnið er að því að opna bók­hald sveitar­félagsins til að auka gagn­sæi í rekstri. Verkið er hafið og því lýkur á þessu ári.

Stjórnsýsla

Nefndar­mönnum fækkað

Kjörnum full­trúum í fjöl­skyldu­nefnd fækkað úr 7 í 5.

Stjórnsýsla

Nefndum fækkað

Nefndir sam­einaðar í eina fjöl­skyldu­nefnd. Aukin hag­ræðing og gæði með meiri sam­fellu.

Stjórnsýsla

Meiri sýni­leiki og samtal

Við höfum opnað nýja heima­síðu og Fjarða­byggðar­appið og lagt áherslu á aukið upp­lýsinga­flæði með reglu­legum viðtals­tímum.

Stjórnsýsla

Viðtals­tímar í öllum byggða­kjörnum

Komum á reglu­bundnum við­tals­tímum íbúa við bæjar­ráð, bæjar­stjóra og sviðs­stjóra.

Stjórnsýsla

Samráð við hag­aðila

Hag­aðilar koma reglu­lega á fundi með bæjar­­ráði s.s. atvinnu­­lífið, heil­brigðis­­þjónustan, lög­­gæsla og félaga­­samtök.

Stjórnsýsla

Fjarða­byggðar­appið

Íbúar sveitar­félagsins geta nú náð í Fjarða­byggðar­appið í símann sinn. Unnið er að því að þróa ábendinga­kerfið inn í appið.

Stjórnsýsla

Ný fjardabyggd.is

Ný og aðgengileg heima­síða var opnuð 2025 sem er einfaldari í rekstri og býður upp á fleiri mögu­leika.

Stjórnsýsla

Aukin samvinna við ungmenna- og öldungaráð

Leitað í auknum mæli til ungmenna- og öldungaráðs. 

Stjórnsýsla

Svæðis­skiptar þjónustu­mið­stöðvar

Breytingar gerðar á fram­kvæmda­sviði og bæjar­verk­stjórum fjölgað og skipt niður á svæði til að tryggja aukna yfirsýn.

Umhverfi

Grenndar­stöðvar úrgangs

Aukið aðgengi að sorp­mót­töku með fjölgun grenndar­stöðva fyrir pappa, plast og annan ógjald­skyldan úrgang. Opnar í byrjun maí 2026.

Umhverfi

Markviss upp­bygging úti­vistar­svæða

Mark­visst unnið að upp­bygg­ingu útivistar- og áninga­staða með fram­kvæmda­sjóði ferða­manna­staða.

Umhverfi

Ábendinga­kerfi bætt

Verið er að þróa ábendinga­kerfið inn í nýja Fjarða­byggðar­appið. Þar verður kerfið notenda­vænna og aðgengi­legra.

Umhverfi

Vor í Fjarða­byggð endur­reist

„Vor í Fjarða­byggð“ endur­vakið og allir hvattir til að taka höndum saman í að hreinsa og fegra byggða­kjarnana.

Umhverfi

Fjölgun útilista­verka

Útilista­verk sett á sements­tankana á Reyðar­firði í anda tanksins í Nes­kaup­stað. Fjölgun úti­lista­verka heldur áfram.