Bæjarráð Fjarðabyggðar leggur til að allar gjaldskrár í A-hluta sveitarfélagsins verði lækkaðar um 3% frá og með næstu mánaðarmótum, sem liður í því að styðja við verðbólgumarkmið og létta undir með heimilum í sveitarfélaginu.
Sveitarfélög gegna mikilvægu hlutverki í efnahagslífinu og hafa þannig áhrif á kostnaðarþróun í samfélaginu. Með því að lækka gjaldskrár vill Fjarðabyggð senda skýr skilaboð um að sveitarfélagið ætli að leggja sitt af mörkum til að draga úr verðbólguþrýstingi og auka ráðstöfunartekjur íbúa.
Bæjarráð telur að svigrúm sé til þessarar lækkunar á grundvelli bættrar rekstrarniðurstöðu og markvissrar fjármálastjórnunar.
Jafnframt hvetur bæjarráð stjórnvöld til að grípa til sambærilegra aðgerða á sínum vettvangi, með því að endurskoða gjaldskrár ríkisins og draga úr álögum þar sem svigrúm er til staðar.