8. júní

Bókun bæjarráðs 8. júní

Bæjarráð Fjarðabyggðar lýsir vonbrigðum sínum með þær áherslur sem birtast í drögum að samgönguáætlun og öðrum áformum ríkisins um innviðauppbyggingu er snúa að Fjarðabyggð. Bæjarráð ítrekar mikilvægi þess að flýta framkvæmdum við Suðurfjarðaveg. Um er að ræða eitt mikilvægasta samgönguverkefni þjóðvegakerfisins og hefur beðið of lengi eftir úrlausn þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar um mikilvægi hans fyrir umferðaröryggi, búsetuskilyrði, atvinnulíf og samkeppnishæfni sveitarfélagsins. Þá lýsir bæjarráð yfir ánægju sinni með að rannsóknir við Fjarðagöng séu að hefjast. Bæjarráð lýsir yfir vonbrigðum með að Austurland skuli ekki vera meðal þeirra landshluta þar sem uppbygging verknámshúss er fyrirhuguð á næstu misserum. Öflugt verknám er lykilforsenda áframhaldandi uppbyggingar atvinnulífs og verðmætasköpunar á Austurlandi og því mikilvægt að nemendur og fyrirtæki á svæðinu búi við sambærileg tækifæri og annars staðar á landinu. Þá vekur það einnig áhyggjur að fjölgun hjúkrunarrýma á Austurlandi skuli ekki vera fyrirhuguð fyrr en árið 2030 þrátt fyrir augljósa og vaxandi þörf. Íbúar Austfjarða eiga rétt á sömu þjónustu og öryggi og aðrir landsmenn og mikilvægt að brugðist sé við þeirri þróun sem fyrirsjáanleg er í öldrun þjóðarinnar. Bæjarráð telur að Fjarðabyggð hafi um of setið eftir þegar kemur að uppbyggingu innviða ríkisins. Á sama tíma standa sveitarfélagið og atvinnulífið í umfangsmikilli uppbyggingu hafna og annarra innviða fyrir milljarða króna til að styðja við áframhaldandi verðmætasköpun fyrir land og þjóð. Mörg verkefni á vegum ríkisins hafa verið til umræðu og á áætlunum um árabil án þess að fjármögnun eða framkvæmdir hafi fylgt. Nú þarf að tryggja að þau komist til framkvæmda. Bæjarráð skorar á ríkisstjórn og Alþingi að forgangsraða uppbyggingu innviða í Fjarðabyggð í samræmi við mikilvægi gagnvart inn- og útflutningi og grunnatvinnuvegum. Með markvissum fjárfestingum í samgöngum, verknámi og heilbrigðisþjónustu getur ríkið stutt við áframhaldandi verðmætasköpun, aukið samkeppnishæfni landsins og skapað forsendur fyrir aukinni hagsæld til framtíðar.