25. mars

Einföldun hafnað – vandinn skilinn eftir

Raggi

1. sæti

Á aðalfundi SSA lagði ég fram tillögu um breytingar á skipan stjórnar sem var í grunninn einföld og skynsamleg. Hún fól í sér að hvert sveitarfélag hefði einn fulltrúa í stjórn með atkvæðavægi í samræmi við íbúafjölda. Með því hefði skapast jafnræði milli sveitarfélaga, skýrari ábyrgð og einfaldara stjórnskipulag. Þetta var ekki róttæk breyting heldur leið til að laga kerfið að raunveruleikanum og bæta það. Tillagan var þó felld.

Í stað þess að fara þessa leið var samþykkt tillaga stjórnar SSA sem gerir ráð fyrir 6 manna stjórn og leiðir til þess að stjórn Austurbrúar verður áfram átta manna. Þannig sitja sex fulltrúar stjórnar SSA í stjórn Austurbrúar og tveir fulltrúar af vettvangi atvinnulífs, menntunar og menningar eins og verið hefur og tækifæri til fækkunar hafnað. Um er að ræða stofnun með um tuttugu starfsmenn, það gefur auga leið að átta manna stjórn í slíkri stofnun er vel yfirhlaðinn. Fyrirkomulagið er hvorki einfalt né skilvirkt og gengur þvert gegn þeim sjónarmiðum um hagræðingu sem sveitarfélögin sjálf hafa þurft að tileinka sér. Þá er þessi niðurstaða einnig þvert á vilja meirihluta fulltrúa Fjarðabyggðar, sem lögðu áherslu á einföldun og aðhald í rekstri.

Rekstur Austurbrúar undirstrikar að þetta er raunverulegt verkefni. Farið hefur verið í hagræðingaraðgerðir og niðurskurð, en þrátt fyrir það var halli á rekstrinum á síðasta ári og áfram er gert ráð fyrir halla. Á sama fundi var jafnframt samþykkt 6,6% hækkun árgjalda SSA, þvert á vilja meirihluta fulltrúa Fjarðabyggðar. Hækkun árgjalda er ekki lausn heldur frestun á vandanum og hún lendir að lokum á sveitarfélögunum sem sjálf hafa þurft að takast á við hagræðingu í eigin rekstri.

Í framhaldi af fundinum bókaði bæjarráð Fjarðabyggðar eftirfarandi: „Í framhaldi af aðalfundi SSA sem haldinn var á Fáskrúðsfirði þann 20. mars sl. leggur bæjarráð Fjarðabyggðar ríka áherslu á að stjórn SSA, greini fjárhag sambandsins og hagræði í rekstri með það fyrir augum að ekki komi til hækkunar árgjalda til sveitarfélaganna. Mikilvægt er að gæta aðhalds í rekstri SSA sem og annarra samstarfsvettvanga sveitarfélaganna á Austurlandi, líkt og gert er í rekstri sveitarfélaganna sjálfra. Því er nauðsynlegt að stjórn SSA fari í þessa vinnu strax og leggi fram tillögur í þessum efnum á komandi haustþingi sambandsins. Bæjarráð Fjarðabyggðar telur þá 6,6% hækkun árgjalda sem samþykkt var í óþökk meirihluta fulltrúa Fjarðabyggðar á aðalfundinum ekki boðlega fyrir sveitarfélögin á Austurlandi og hvetur stjórn SSA til að endurskoða þá ákvörðun í tengslum við vinnu þessa.“

Það er alls ekki við starfsfólk Austurbrúar að sakast, sem vinnur sína vinnu af heilindum, heldur er það hlutverk stjórnar að tryggja að reksturinn standi undir sér.

Austurbrú er nýkomin út úr erfiðri stjórnskipulagsbreytingu sem m.a. var ætlað að mæta hallarekstri, en þrátt fyrir það stöndum við enn frammi fyrir sömu áskorunum. Við höfum áður séð hvað gerist þegar rekstur fer úr böndunum og þann kostnað sem fylgir því að vinna upp uppsafnaðan halla. Við eigum ekki að fara þá leið aftur. Þess vegna skiptir máli að kjörnir fulltrúar séu tilbúnir til að axla ábyrgð og taka þátt í hagræðingu. Ef við erum ekki tilbúin til að draga úr kostnaði í eigin stjórnskipulagi er erfitt að sjá hvernig við ætlum að taka næstu skref í rekstri Austurbrúar. Einföld regla ætti að gilda: þegar þarf að hagræða byrjum við á okkur sjálfum.

Tillagan um einfaldari skipan stjórnar var að mínu mati borðleggjandi. Hún hefði leitt til skýrari ábyrgðar, aukinnar skilvirkni og raunverulegs sparnaðar. Hún var ekki samþykkt, en það breytir ekki því að vandinn stendur eftir og kallar á skýrari viðbrögð en þau sem urðu ofan á.