Fjarðabyggð til framtíðar

Málefnasamningur Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar 2026–2030

Inngangur

Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn í Fjarðabyggð hafa náð samkomulagi um áframhaldandi meirihlutasamstarf á kjörtímabilinu 2026–2030.

Flokkarnir byggja samstarf sitt á góðri reynslu síðustu tveggja ára þar sem lögð hefur verið áhersla á ábyrgan rekstur, aukna fjárhagslega festu, markvissa uppbyggingu, viðhald mannvirkja og öfluga hagsmunagæslu fyrir Fjarðabyggð.

Á síðasta kjörtímabili náðist mikilvægur viðsnúningur í rekstri sveitarfélagsins með auknu aðhaldi, bættri afkomu og auknu svigrúmi til fjárfestinga án nýrra lántaka. Samhliða því var farið í mikilvæga uppbyggingu í innviðum.

Flokkarnir eru sammála um að halda áfram á þeirri braut með skýra framtíðarsýn, ábyrg vinnubrögð og áherslu á áframhaldandi sókn sveitarfélagsins.

1. Fjármál og ábyrgur rekstur

Ábyrg fjármálastjórn og áframhaldandi aðhald í rekstri

Skuldir sveitarfélagsins eru enn of háar og vaxtagreiðslur of hátt hlutfall af útgjöldum. Við ætlum að halda áfram að greiða niður skuldir svo fjármunirnir nýtist betur innan sveitarfélagsins.

Við höldum áfram að taka til í rekstrinum, forgangsraða verkefnum og sýna ábyrgð. Ávallt skal kostnaðarmeta verkefni og tíma starfsfólks.

Álögur lækkaðar

Við ætlum að lækka fasteignagjöld á íbúðarhúsnæði strax um áramótin. Góður rekstur sveitarfélagsins á að skila sér til íbúanna. Gjaldskrárhækkunum verður jafnframt stillt í hóf.

Aukin samræming innkaupa og skýrari innkaupaheimildir

Við munum samræma innkaup sveitarfélagsins, herða eftirlit með innkaupum og tryggja skýra ábyrgð til að ná betri kjörum, auknu gagnsæi og markvissari nýtingu skattfjár.

Markvissara eftirlit með framkvæmdum sveitarfélagsins

Við herðum eftirfylgni með framkvæmdum með skýrum samningum, reglulegu eftirliti og ábyrgðarskiptingu, til að tryggja að verkefni haldist innan tíma- og kostnaðaráætlana. Settar verða reglur um verklok til að tryggja eftirfylgni, úrbætur og frágang.

Lægri orkukostnaður

Unnið verði að því að draga úr orkukostnaði sveitarfélagsins með nýjum og hagkvæmari orkulausnum. Sérstök áhersla verður lögð á þróun fjarvarmaveitna, betri orkunýtingu í fasteignum sveitarfélagsins og aðrar tæknilausnir sem stuðla að lægri rekstrarkostnaði.

Opið bókhald innleitt árið 2026

Lokið verður við að opna bókhald sveitarfélagsins sem veitir íbúum meira gagnsæi í ráðstöfun fjármuna. Við ætlum að ljúka þeirri vinnu strax á þessu ári svo allir geti séð í hvað peningarnir fara.

Forgangsröðun verkefna

Út frá starfsmannaveltu verður farið yfir verkefni og skipulag á starfsemi með það að markmiði að nýta mannafla betur, dreifa verkefnum með skilvirkari hætti og skoða hvort hægt sé að leysa verkefni með breyttu fyrirkomulagi áður en ráðið er í stöður að nýju.

Einfaldari stjórnsýsla

Unnið verður að því að einfalda stjórnsýslu sveitarfélagsins og styrkja ferla innan hennar til að bæta þjónustu við íbúa enn frekar.

Fasteignir og innviðir til framtíðar

Farið verður í stefnumótun um fasteignir sveitarfélagsins með áherslu á ábyrga eignastýringu, markvissa forgangsröðun fjárfestinga og bætta nýtingu eigna. Markmiðið er að draga úr viðhaldsskuld, styðja við uppbyggingu samfélagsins og tryggja hagkvæman rekstur til lengri tíma. Gerð verður viðhaldsáætlun til lengri tíma á fasteignum sveitarfélagsins.

2. Atvinnumál og hafnir

Uppbygging Mjóeyrarhafnar til ársins 2040

Áhersla verður lögð á uppbyggingu Mjóeyrarhafnar og þreföldun hennar í samræmi við langtímaáætlun til ársins 2040 um þróun lóða og hafnaraðstöðu til að anna vaxandi eftirspurn atvinnulífsins.

Fjölbreyttari atvinnutækifæri

Við ætlum að tryggja gott framboð fjölbreyttra atvinnulóða og virkt samtal við áhugasama aðila sem vilja standa að atvinnuuppbyggingu í Fjarðabyggð. Við ætlum að gera Fjarðabyggð að eftirsóttum stað til uppbyggingar á fjölbreyttri atvinnustarfsemi og ákjósanlegum kosti fyrir störf án staðsetningar.

Efling ferðaþjónustu

Við ætlum að beita okkur fyrir eflingu ferðaþjónustu með áframhaldandi uppbyggingu áfangastaða í gegnum verkefni á borð við Áfangastaðaáætlun og Framkvæmdasjóð ferðamannastaða. Mótuð verður framtíðarsýn fyrir móttöku skemmtiferðaskipa, markaðssetningu áfangastaðarins og mikilvæga
uppbyggingu hafnaraðstöðu til að geta tekið á móti skemmtiferðaskipum í auknu mæli.

Farið verður í aukna markaðssetningu Fjarðabyggðar fyrir heilsársferðaþjónustu bæði fyrir innlenda og erlenda ferðamenn með áherslu á skíðasvæðið í Oddsskarði.

Aukið samstarf sveitarfélags og atvinnulífs

Stuðlað verður að klasasamstarfi milli sveitarfélagsins og atvinnulífsins í Fjarðabyggð og þannig komið á virkum samráðsvettvangi milli atvinnulífsins og sveitarfélagsins í hagsmunamálum tengdum samfélaginu.

Landbúnaður og dreifbýli

Við ætlum að vinna áfram að stöðugu umhverfi landbúnaðar og standa vörð um dýrmætt ræktunarland. Við munum styðja við nýliðun og nýsköpun í landbúnaði eins og kostur er og tryggja áfram örugga búsetu í dreifbýli og mikilvæga þjónustu sem sveitarfélagið veitir þar.

Rafvæðing hafna

Fjarðabyggð mun fara í rafvæðingu hafna til að styðja við orkuskipti, draga úr losun og bæta umhverfi hafnarsvæða. Lögð verður áhersla á að tryggja nauðsynlega innviði og aðstöðu en einkaframtak og atvinnulíf komi að uppbyggingu og rekstri.

Þjónustumiðstöð olíuleitar

Sveitarfélagið mun áfram hvetja til olíuleitar á Drekasvæðinu og vera reiðubúið að styðja við uppbyggingu þjónustu, hafnaraðstöðu og annarra innviða sem nauðsynlegir eru til að Fjarðabyggð geti gegnt lykilhlutverki sem þjónustumiðstöð fyrir starfsemi tengda Drekasvæðinu.

Fjarðabyggðarhafnir til framtíðar

Gerð verður fýsileikakönnun þar sem greindir verða kostir þess og gallar, ásamt nauðsynlegum aðgerðum til að gera Fjarðabyggðarhafnir að sjálfstæðu félagi í eigu sveitarfélagsins.

Uppbygging virkniúrræða

Sveitarfélagið mun, í samstarfi við atvinnulífið, vinna að uppbyggingu fjölbreyttra virkniúrræða fyrir einstaklinga sem standa utan vinnumarkaðar eða þurfa stuðning til aukinnar þátttöku. Markmiðið er að skapa fleiri tækifæri til virkni, starfsþjálfunar og samfélagsþátttöku með nánu samstarfi sveitarfélags, fyrirtækja og stofnana.

Grænn orkugarður

Stutt verður áfram við uppbyggingu Græna orkugarðsins í Fjarðabyggð. Verkefnið hefur burði til að styrkja sveitarfélagið sem eina af lykilmiðstöðvum orkuskipta og nýrrar verðmætasköpunar á Íslandi með áherslu á sjálfbærni, nýsköpun og græna atvinnuuppbyggingu.

Gamli barnaskólinn verður þekkingarkjarni

Unnið verður að opnun Rannsóknarsetur HÍ á sviði menntavísinda í gamla barnaskólanum á Eskifirði 2027.

3. Fræðslu- og fjölskyldumál

Örugg leikskólavist

Við ætlum að tryggja stöðuga mönnun og örugga leikskólavist frá 12 mánaða aldri. Við höldum áfram með sveigjanlega vistun og lægra gjald á styttri vistunartíma. Lögð verður áhersla á að tryggja stöðuga mönnun, bæta starfsumhverfi leikskóla og draga úr álagi á starfsfólk. Markmiðið er að skapa meiri fyrirsjáanleika fyrir börn og foreldra og fækka skráningardögum eftir því sem aðstæður leyfa.

Aukin þjónusta

Við ætlum að auka sérfræðiþjónustu við leik- og grunnskóla og styrkja enn frekar samfellu þjónustu við börn og ungmenni í anda samþættrar þjónustu í þágu farsældar barna. Jafnframt ætlum við að rýna og bæta þjónustu enn frekar við fötluð börn, innan og utan skóla.

Ný menntastefna

Við ætlum að vinna nýja menntastefnu í samráði við samfélagið og stjórnendur fræðslumála. Mikilvægt er að endurnýja stefnuna og gera hana að aðgerðaáætlun m.a. til að efla lestur, stærðfræði og persónumiðað nám. Jafnframt að skoða leiðir til að nýta tæknilausnir enn betur í skólastarfi og tryggja reglulega endurnýjun búnaðar þannig að skólarnir séu í stakk búnir til að nýta tækni í skólastarfi.

Aukið skólasamstarf

Við höldum áfram að efla enn frekar samstarf innan skólastiga og milli leik- og grunnskólastigsins. Þá verði jafnframt aukið samstarf milli grunn- og framhaldsskóla í nýsköpun auk iðn- og tæknigreina. Sameinaður tónlistarskóli Fjarðabyggðar verður efldur enn frekar.

Verkmenntaskóli Austurlands

Sveitarfélagið mun klára skipulagsvinnu í tengslum við stækkun á verknámshúsi Verkmenntaskólans. Við munum þrýsta á um að stjórnvöld hefji framkvæmdir sem fyrst.

4. Íþrótta- og æskulýðsmál

Nýtt íþróttahús á Eskifirði

Framkvæmdir við nýtt íþróttahús á Eskifirði hefjast árið 2026 og haldið verður áfram vinnu starfshópsins um íþróttahúsið, nýtingarmöguleika þess og eflingu íþróttastarfs á Eskifirði.

Fjarðabyggðarhöllin fullkláruð

Við munum ljúka endurbótum á Fjarðabyggðarhöllinni eins fljótt og kostur er, koma upp kyndingu, endurbættu hljóðkerfi og fegra umhverfi og ásýnd kringum höllina.

Starfsmaður íþróttafélaga

Sveitarfélagið mun fjármagna stöðu starfsmanns íþróttafélaganna sem aðstoðar m.a. við daglegt starf, fjármögnun, mannaráðningar, mótahald, skipulagningu keppnisferða og tryggir betra samstarf þeirra á milli og við sveitarfélagið. Starfsmaðurinn verður á forræði íþróttafélaganna.

Ferðasjóður

Stofnaður verður ferðasjóður iðkenda íþrótta og tómstunda í samráði við atvinnulífið til að koma til móts við háan ferðakostnað iðkenda í íþróttum og öðrum tómstundum. Úthlutanir skila sér beint til iðkendanna.

Æskulýðsstarf

Við munum efla æskulýðsstarf þvert á byggðarkjarna, tryggja gott húsnæði fyrir félagsmiðstöðvar og reglulega starfsemi. Akstur og sameiginlegar opnanir félagsmiðstöðva í öllum byggðarkjörnum auknar og möguleikar skoðaðir á að koma upp ungmennahúsi fyrir börn eldri en 16 ára.

Oddsskarð

Við ætlum að efla rekstur og uppbyggingu skíðasvæðisins í Oddsskarði. Vinna þarf áætlun um uppbyggingu til næstu ára með áherslu á tækjageymslu og stækkun skálans í byrjun en sýn fyrir svæðið í heild til lengri tíma. Við munum skoða aukið samstarf með Vinum Oddskarðs og skíðahreyfingunni með það fyrir augum að hagaðilar komi með auknum mæli að daglegum rekstri Oddskarðs.

Íþróttir og tómstundir eldra fólks

Við ætlum að halda áfram með verkefni Janusar og efla frístundir eldri borgara, tryggja góða aðstöðu, stöðugleika og fjölbreytni í tómstundastarfi eldra fólks.

Forvarnir

Við ætlum að efla víðtækt forvarnarstarf í Fjarðabyggð. Öflugar og aðgengilegar félagsmiðstöðvar eru líka forvarnamál.

5. Heilbrigðis- og öldrunarmál

Gott að eldast

Unnið verður að því koma á verkefninu Gott að eldast sem tryggir samþættingu heimaþjónustu og heimahjúkrunar. Það gerir eldra fólki kleift að búa lengur heima hafi það heilsu og vilja til þess.

Breiðablik

Breiðablik verður áfram þjónusturými fyrir aldraða, samið verður við leigufélagið Bríeti um eignarhald, viðhald, uppbyggingu og stækkun á Breiðabliki eins fljótt og kostur er.

Hjúkrunarrými

Berjumst áfram fyrir fjölgun hjúkrunarrýma í Fjarðabyggð og að fyrirhugaðri stækkun Hulduhlíðar verði flýtt. Jafnframt verður þess krafist að hjúkrunarrými verði áfram í Neskaupstað og að farið verði í endurbætur á Uppsölum.

Dagdvalarþjónusta fyrir eldri borgara

Unnið verður að frekari uppbyggingu dagdvalarþjónustu fyrir eldri borgara í Fjarðabyggð. Markmiðið er að efla þjónustu, félagslega virkni og stuðla að sjálfstæðri búsetu eldra fólks.

Fjölgun búsetukosta fyrir eldri íbúa

Í samvinnu við einkaaðila verður farið í fjölgun búsetukosta fyrir eldri íbúa í samræmi við húsnæðiskönnun eldra fólks.

Samstarf við Píeta samtökin eflt

Við ætlum að efla enn frekar samstarf Fjarðabyggðar og Píeta samtakanna með áherslu á forvarnir, sálgæslu og fræðslu. Markmiðið er að styrkja geðheilbrigði í samfélaginu, auka aðgengi að stuðningi og efla fræðslu fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur.

Samþætt þjónusta

Við ætlum að bæta ferli og samþættingu þjónustu við fötluð börn og fjölskyldur þeirra með auknu samstarfi skóla, frístundastarfs, íþróttafélaga og félagsþjónustu. Við viljum hverfa frá því að hugsa um fötluð börn sem afmarkaðan hóp innan kerfisins og tryggja að þau séu hluti af samfélaginu, skólastarfi, tómstundum og íþróttum eins og önnur börn. Þjónustan á að byggjast á þátttöku og snemmtækum stuðningi með fjölskyldurnar í forgrunni.

Aukin akstursþjónusta

Akstursþjónusta fyrir fólk með stuðning verður aukin.

Félagsstarf eldri borgara

Unnið verður með félagi eldri borgara í Neskaupstað að varanlegri lausn húsnæðismála fyrir félagsstarf. Endurnýjaðir verða samningar við félög eldri borgara og haldið verður áfram að efla öldungaráð ásamt fræðslu- og forvarnarstarfi þess.

6. Umhverfi og uppbygging

Viðhaldsátak

Förum í átak í viðhaldi gatna, gangstétta og veitukerfis auk þess að halda áfram uppbyggingu fráveitu. Auka nýtingu mannvirkja í eigu sveitarfélagsins og leggja af þau húsnæði sem hægt er að koma í önnur not.

Fallegra umhverfi

Við leggjum áherslu á fegrun umhverfis bæði í þéttbýli og dreifbýli með sérstakri áherslu á aðkomu inn í byggðakjarnana. Fegrunarátak verður unnið með íbúasamtökum á hverjum stað. Við ætlum að auka umhverfisvitund og sjálfbærni í stofnunum Fjarðabyggðar, t.d. með því að halda áfram með verkefnið Græn skref.

Skipulagsmál

Við munum ráða inn skipulagsfulltrúa til að styðja við aukna uppbyggingu og skipulagsgerð í sveitarfélaginu. Leggjum aukna áherslu á deiliskipulagsgerð og að yfirfara eldri deiliskipulög til að tryggja fjölbreytt lóðaframboð og nýtingu innviða sem eru til staðar.

Nægt lóðaframboð

Við munum áfram tryggja afslátt af gatnagerðagjöldum og förum í sérstakar aðgerðir til að fjölga lóðum þar sem við á og eftirspurn er til staðar.

Meira leiguhúsnæði

Við ætlum að fjölga leiguhúsnæði í Fjarðabyggð í samstarfi við atvinnulíf, byggingaraðila og leigufélög til að mæta vaxandi eftirspurn. Sérstök áhersla verður lögð á að tryggja að nýir íbúar og fjölskyldur hafi aðgang að öruggu leiguhúsnæði á meðan þau festa rætur í samfélaginu og koma sér fyrir til framtíðar.

Nýir miðbæjarreitir

Við munum hefja framkvæmdir strax í sumar við nýtt og glæsilegt miðbæjartorg við Egilsbúð í Neskaupstað og samhliða framkvæmdum við Grjótá verður lokið við skipulag miðbæjarsvæðisins á Eskifirði í samvinnu við íbúa. Þá verður einnig lokið við skipulagsvinnu og þróun miðbæjarkjarna á Reyðarfirði í samvinnu við lóðarhafa þannig að fyrirhuguð uppbygging geti hafist.

Aðgengilegar lausar lóðir

Við ætlum að auka upplýsingagjöf um lausar lóðir og hafa þær aðgengilegar á vefnum með lykilupplýsingum um lóðirnar

Sorpbrennslustöð

Við munum skoða tækifæri á sorpbrennslustöð til orkuframleiðslu í samstarfi við önnur sveitarfélög og fyrirtæki á svæðinu.

7. Samgöngur og innviðir

Samgöngur milli byggðakjarna

Við munum þrýsta áfram á tafarlausar framkvæmdir við Suðurfjarðaveg og úrbætur í skriðunum milli Stöðvarfjarðar og Breiðdalsvíkur. Við munum styðja við rannsóknir og kostnaðarmat jarðganga til að leysa af hættulegan vegkafla á Suðurfjörðum.

Almenningssamgöngur

Við munum þróa áfram almenningssamgöngukerfi Fjarðabyggðar sem samræmist atvinnu, íþróttum, tómstundum, menntun og menningu.

Uppbygging stíga

Við munum fjárfesta áfram í göngu-, hjóla- og reiðstígum sem víðast í sveitarfélaginu og vinnum að skipulagi og forgangsröðun þegar kemur að uppbyggingu stíga. Sett verður í forgang að klára þau verkefni sem þegar eru hafin.

8. Menning og mannlíf

Menningarstofa Fjarðabyggðar og söfnin okkar

Við munum halda áfram að efla Menningarstofu Fjarðabyggðar og styrkja samstarf hennar og grasrótar í menningarstarfsemi sveitarfélagsins svo Menningarstofa verði aukin stoð við viðburðarhaldara í stað þess að standa fyrir viðburðahaldi beint. Við munum halda áfram að efla söfn í eigu Fjarðabyggðar með öflugra safnakerfi og ljúka við enduruppbyggingu Stríðsárasafnsins.

Sagnaslóð Fjarðabyggðar

Unnið verður að lifandi sagnaslóð í Fjarðabyggð með uppbyggingu á sagnastöðum, merkingum og stafrænum lausnum sem gera sögu svæðisins aðgengilega fyrir íbúa og gesti.

Aukin opnun og alþjóðlegt samstarf Franska safnsins

Farið verður í að efla Franska safnið og Franska daga í samstarfi við franska sendiráðið og vinabæinn Gravelines með það fyrir augum að styrkja vinaböndin, auka menningartengsl, efla ferðaþjónustu og gera franska arfleifð Fáskrúðsfjarðar enn sýnilegri og öflugri hluta af mannlífi sveitarfélagsins.

9. Stoltari Fjarðabyggð

Stoltari Fjarðabyggð

Ráðist verður í átakið Stoltari Fjarðabyggð sem er ætlað að efla stolt, samstöðu og jákvæða ímynd Fjarðabyggðar. Við ætlum að virkja íbúa til þátttöku, efla samstarf og styrkja samfélagsandann. Verslum í heimabyggð, stöndum saman og treystum böndin.

Efnahagsmælaborð

Sett verður upp opið mælaborð sem sýnir skattspor, atvinnutekjur og efnahagsumsvif Fjarðabyggðar og helstu atvinnugreina. Mælaborðið verður tilbúið strax á þessu ári og gerir framlag samfélagsins sýnilegt.

Stafræn Fjarðabyggð

Við ætlum að halda áfram að byggja upp stafræna Fjarðabyggð á vefnum og í appinu svo íbúar hafi fljótlega og greiða leið að upplýsingum, s.s. æfingatöflum íþróttafélaganna og til að skrá ábendingar. Við munum setja Fjarðabyggðakortið í símann.

Aukin samvinna við íbúa

Íbúar og íbúasamtök fá aukna aðkomu að verkefnum sveitarfélagsins í gegnum Fjarðabyggðarappið og íbúasamtökin. Íbúasamtökin fá stærra hlutverk við forgangsröðun verkefna í nærumhverfinu í samvinnu við íbúa.

Samtökin verða í reglubundnu samtali við bæjarráð og vinna með bæjarfélaginu að framfaramálum. Með því að gefa íbúum raunverulegt hlutverk í verkefnum og ákvarðanatöku styrkjum við samfélagskennd og ábyrgð.

Reglulegir viðtalstímar

Bæjarstjóri, formaður bæjarráðs og forseti bæjarstjórnar munu bjóða reglulega upp á viðtalstíma í öllum byggðakjörnum ásamt öðrum kjörnum fulltrúum. Þá verður einnig boðið upp á reglulega viðtalstíma sviðsstjóra sveitarfélagsins í kjörnunum.

Miðstöð verðmætasköpunar

Farið verður í aukna markaðssetningu á Fjarðabyggð sem öflugrar miðstöðvar verðmætasköpunar. Við ætlum að kynna styrkleika sveitarfélagsins markvisst fyrir landsmönnum, stjórnvöldum, atvinnulífi og fjárfestum til að auka sýnileika og laða að ný tækifæri.

Fjölmenningaráð

Ráðið verður endurskoðað með það að markmiði að auka virkni þess og þátttöku íbúa af erlendum uppruna í samfélaginu. Áhersla verður lögð á að þróa samstarfið áfram á forsendum samtals, þátttöku og virkari tengingar við samfélagið, atvinnulíf, skóla og íþrótta- og tómstundastarf.

Verkaskipting

Bæjarstjóri

Jóna Árný Þórðardóttir verður endurráðin sem bæjarstjóri.

Forseti bæjarstjórnar

Framsókn

2. forseti bæjarstjórnar:

Sjálfstæðisflokkurinn

Formaður bæjarráðs

Sjálfstæðisflokkurinn

Skipulags- og framkvæmdanefnd

Framsókn

Fjölskyldunefnd

Sjálfstæðisflokkurinn

Menningarstofa

Framsókn

Hafnarstjórn

Sjálfstæðisflokkurinn

Fjallskilanefnd

Framsókn

Öldungaráð

Framsókn

Fjölmenningaráð

Sjálfstæðisflokkurinn