12. maí

Frumkvæði sem styrkir samfélagið

Raggi

1. sæti

Það er ánægjulegt að sjá hversu vel hefur verið tekið í nýjan padelvöll á Reyðarfirði. Samkvæmt frétt Austurfréttar er völlurinn þegar vel bókaður og ljóst að áhuginn er mikill. Þetta sýnir að fólk í Fjarðabyggð kallar eftir fjölbreyttari afþreyingu, fleiri tækifærum til hreyfingar og auknu mannlífi í samfélaginu okkar.

Slík verkefni verða ekki til af sjálfu sér, þau verða til þegar fólk sýnir frumkvæði og er tilbúið að leggja sitt af mörkum til samfélagsins. Það er heldur ekkert nýtt að sveitarfélagið styðji verkefni sem efla samfélagið, tómstundir og íþróttastarf. Sem dæmi má nefna leigu á Félagslundi á Reyðarfirði á sínum tíma og Valhöll á Eskifirði. Það er því hvorki nýtt né óeðlilegt að eignir sveitarfélagsins séu leigðar út til samfélagslegra verkefna og starfsemi. Í þessu tilfelli er um að ræða einkaframtak þar sem einstaklingur ræðst í verulega fjárfestingu til að byggja upp nýja aðstöðu. Sveitarfélagið gerir leigusamning um húsnæðið og fær þar með betri nýtingu á eign sem áður var takmarkað nýtt.

Það má alltaf ræða upphæðir í leigusamningum og eðlilegt er að fólk hafi skoðanir á þeim. En spurningin er líka þessi: Hefðum við átt að fæla frá einstakling sem vildi fjárfesta í samfélaginu okkar, skapa nýja afþreyingu og leggja sitt af mörkum til mannlífsins?

Hér er um að ræða fyrsta padelvöllinn utan höfuðborgarsvæðisins. Það er ekki lítið mál. Þetta er dýr fjárfesting og það gefur augaleið að enginn verður ríkur af því að reka einn padelvöll á Reyðarfirði. Verkefnið snýst fyrst og fremst um áhuga, frumkvæði og vilja til að gera samfélagið fjölbreyttara og skemmtilegra.

Það sem skiptir mestu máli er að hér bætist við nýtt tækifæri fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur til hreyfingar og samveru. Slík verkefni gera samfélög sterkari og eftirsóknarverðari til búsetu.

Padelvöllurinn kemur heldur ekki í veg fyrir sundlaug í framtíðinni, verði það vilji sveitarfélagsins. En það er líka mikilvægt að tala hreint út um stöðuna. Það lá alveg ljóst fyrir að ný eða endurbætt sundlaug á Reyðarfirði myndi ekki rísa á næstu árum, miðað við fjárfestingargetu sveitarfélagsins og það viðhald sem þegar er fram undan, þrátt fyrir að aukið hafi verið í það síðustu misseri. Enginn flokkur hefur talað fyrir því að slíkar framkvæmdir væru handan við hornið.

Á meðan erum við hér að fá aukna nýtingu á íþróttahúsinu, nýja afþreyingu og fleiri tækifæri fyrir samfélagið okkar. Við eigum að fagna því, rétt eins og ungmennin okkar eru þegar farin að gera.

Við eigum að fagna fólk sem sýnir frumkvæði og er tilbúið að leggja í uppbyggingu í Fjarðabyggð. Sem betur fer gera flestir það.

Höfundur er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð.