8. maí

Fulla ferð í íþróttum og æskulýðsmálum í Fjarðabyggð 

Kiddi

2. sæti

Íþróttir og æskulýðsstarf eru ekki bara tómstundir, þau eru grunnur að öflugu samfélagi, betri lýðheilsu og sterkari framtíð. Við í Fjarðabyggð höfum byggt upp öflugt starf á þessu sviði, en við ætlum að taka næsta skref og setja fullan kraft í meiri uppbyggingu, stuðning og nýjar lausnir.

Eitt stærsta og mikilvægasta verkefnið fram undan er nýtt íþróttahús á Eskifirði. Engin áform voru um uppbyggingu íþróttahúss eftir að gamla húsnæðinu var lokað en við tókum það upp af fullum þunga. Nú er frumhönnun lokið, staðsetning ákveðin og framkvæmdir hefjast strax í sumar. Þetta er mikilvæg fjárfesting í aðstöðu fyrir börn, ungmenni og alla íbúa.

Við ætlum einnig að styrkja stoðir íþróttahreyfingarinnar sjálfrar. Sjálfboðaliðastarf er orðið krefjandi og því ætlum við að fjármagna stöðu starfsmanns íþróttafélaganna. Sá aðili mun starfa á forræði félaganna og styðja við daglegt starf, mótahald, fjármögnun og skipulag. Þetta mun létta álagið, efla fagmennsku og styrkja samstarf milli félaga og sveitarfélags.

Við vitum að þátttaka barna og ungmenna í íþróttum og tómstundum kostar en er gríðarlega mikilvæg. Þess vegna ætlum við að koma á ferðasjóði í samráði við atvinnulífið. Markmiðið er að draga úr fjárhagslegum hindrunum og tryggja að allir geti tekið þátt, óháð aðstæðum.

Í æskulýðsmálum ætlum við að stórefla starfsemi félagsmiðstöðva með auknu samstarfi milli byggðarkjarna og fjölbreyttari viðburðum. Ungmenni hafa kallað eftir meiri samgangi og það ætlum við að hlusta á. Með þessu byggjum við upp sterkari tengsl og virkari þátttöku.

Við munum taka stór skref í uppbyggingu skíðasvæðisins í Oddsskarði með því að setja reksturinn í sjálfstætt félag í samstarfi við hagaðila. Með skýrari ábyrgð og faglegri stjórnun skapast betri grunnur fyrir þróun svæðisins til framtíðar.

Aðstaðan skiptir máli. Við ljúkum við umbætur á Fjarðabyggðarhöllinni á þessu ári með bættri lýsingu, einangrun og hitun. Þannig verður hún aðgengilegri og nýtist fyrir alla aldurshópa allt árið um kring.

Loks ætlum við að efla forvarnarstarf fyrir ungmenni með markvissri fræðslu í skólum og samstarfi við foreldra og samfélagið. Sterkar forvarnir eru besta fjárfestingin sem við getum lagt í framtíðina.

Markmiðið er skýrt: að skapa umhverfi þar sem allir geta tekið þátt, þroskast og fundið sinn stað. Með öflugum innviðum, stuðningi við félögin og aukinni samvinnu ætlum við að setja fulla ferð í íþróttir og æskulýðsmál í Fjarðabyggð.

Höfundur skipar 2. sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar