3. mars

Heilbrigðisþjónustan í Neskaupstað og ábyrg umræða

Raggi

1. sæti

Í frétt Austurfréttar um stöðu jarðgangamála á Austurlandi (Segja forsendur Fjarðarheiðarganga hafa brostið með jarðgangaáætlun 2023 - Austurfrétt) er greint frá ummælum sem féllu á opnum fundi á Seyðisfirði í síðustu viku. Þar er haft eftir Eyjólfi Þorkelssyni, framkvæmdastjóra lækninga hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands, að horft hafi verið fram hjá „mikilvægasta þættinum sem væri heilsugæslan og hún væri ekki í Neskaupstað.“

Sú fullyrðing stenst ekki skoðun.

Í Neskaupstað er starfrækt öflug heilsugæsla og þar er jafnframt staðsett umdæmissjúkrahús Austurlands. Á vef Heilbrigðisstofnunar Austurlands kemur skýrt fram að heilsugæsla er veitt í Neskaupstað með læknaþjónustu, hjúkrun, bráðaþjónustu og fjölbreyttri stoðþjónustu. Að halda öðru fram er einfaldlega rangt og grefur undan þeirri faglegu og traustu þjónustu sem þar er veitt daglega.

Það er fullkomlega eðlilegt að skiptar skoðanir séu um gangnamál á Austurlandi. Um það má og á að ræða af festu og rökvísi. En þegar umræðan snýr að heilbrigðisþjónustu, einni af grunnstoðum samfélagsins, verðum við að gæta sérstakrar ábyrgðar í orðavali. Stöðu sinnar vegna ber framkvæmdastjóra lækninga rík skylda til að tala af nákvæmni og forðast fullyrðingar sem geta skapað tortryggni gagnvart starfsemi sem nýtur trausts íbúa.

Heilsugæslan í Neskaupstað er ekki aðeins til staðar, hún er burðarás í þjónustu við stóran hluta Austurlands. Þar er einnig umdæmissjúkrahús sem gegnir lykilhlutverki í bráða- og sérfræðiþjónustu. Að tala niður þá starfsemi með því að gefa í skyn að hún sé ekki fyrir hendi, hvort sem það er af ásetningi eða í fljótfærni, getur dregið úr trausti, skapað óþarfa ugg og haft áhrif á starfsfólk sem vinnur þar mikilvægt starf.

Hitt er svo annað mál að samgöngur og heilbrigðisþjónusta eru nátengdir þættir. Það gefur auga leið að styttri og öruggari vegalengdir til og frá sjúkrahúsi og heilsugæslu styrkja þjónustuna í heild. Óháð því hvaða jarðgöng verða að veruleika í framtíðinni mun skipulag heilsugæslu á Austurlandi taka mið af breyttu aðgengi og samgöngum. Þannig hefur það alltaf verið. Samgöngur og þjónustuskipan þróast saman.

Sú góða og öfluga þjónusta sem veitt er í Neskaupstað er engin fyrirstaða í þeim efnum. Þvert á móti er hún traustur grunnur sem hægt er að byggja á þegar aðstæður breytast. Heilbrigðisstofnun Austurlands mun, líkt og áður, þurfa að aðlaga þjónustu sína að raunverulegum samgöngum, búsetumynstri og þörfum íbúa hverju sinni.