Atvinnuuppbygging og ábyrg fjármál eru lykilforsendur þess að Fjarðabyggð dafni til framtíðar. Í dreifðu sveitarfélagi, eins og okkar, þar sem þjónusta og aðstaða þarf að vera til staðar í fleiri byggðakjörnum, skipta traust fjármál sköpum.
Með því að stuðla að fjölbreyttum atvinnutækifærum tryggjum við fólki öryggi og hvetjum ungt fólk til að setjast hér að. Sterk atvinnustarfsemi og skynsamleg fjármálastjórn gera okkur kleift að byggja upp innviði sem styrkja samfélagið og bæta lífsgæði íbúa.
Frá því að Sjálfstæðisflokkurinn fór í meirihluta árið 2024 hefur verið lögð áhersla á festu í rekstri, skýra forgangsröðun og langtímahugsun. Sú vinna skapar raunhæft svigrúm til markvissrar uppbyggingar til framtíðar. Eitt þeirra er uppbygging nýs íþróttahúss á Eskifirði. Mikilvægt er að halda því verkefni áfram og tryggja að það verði að veruleika sem fyrst.
Þörfin er skýr. Börn og ungmenni þurfa góða aðstöðu til skólaíþrótta og frístundastarfs og allir íbúar eiga að hafa greiðan aðgang að hreyfingu sem eflir heilsu og lífsgæði. Ég hlakka til að sjá öflugt íþrótta- og keppnishald í nýju íþróttahúsi staðsett við hlið sundlaugarinnar, þar sem samlegðaráhrif skapast með því að tengja saman sund, íþróttir og aðra heilsueflandi starfsemi á einum stað. Slík uppbygging styrkir samfélagið og eykur aðdráttarafl bæjarins til að laða að nýja íbúa á Eskifirði.
Með áframhaldandi ábyrgri fjármálastjórn og skýrri framtíðarsýn er hægt að halda áfram að efla innviði allra bæjarkjarna. Þannig byggjum við upp sterkara, samkeppnishæfara og fjölskylduvænna samfélag í sveitarfélaginu okkar.
