11. maí

Þar sem góð vinnuaðstaða er til staðar aukast tækifæri til starfa

Ingunn

10. sæti

Samvinnurými og sameiginleg skrifstofuaðstaða geta haft veruleg áhrif á þróun atvinnulífs á landsbyggðinni. Gott dæmi um slíka uppbyggingu er Múlinn samvinnuhús í Neskaupstað, þar sem fyrirtæki og stofnanir geta leigt vinnuaðstöðu í sameiginlegu og vel búnu vinnuumhverfi. Að slík aðstaða sé til staðar í fleiri bæjarkjörnum Fjarðabyggðar eykur líkur á að fyrirtæki og ríkisstofnanir sjái sér hag í að staðsetja þar störf og starfsemi.

Síðasta sumar fékk ég sjálf tækifæri til að kynnast aðstöðu Múlans vel þegar ég leysti af hjá ríkisstofnun með starfsstöð í Neskaupstað. Aðstaðan í Múlanum er til fyrirmyndar, með vel hönnuðum og rúmgóðum skrifstofurými, góðri birtu og vandaðri sameiginlegri aðstöðu. Slíkt vinnuumhverfi laðar fyrirtæki og stofnanir til að staðsetja þar störf.

Vilji er víða til að fjölga störfum á landsbyggðinni, en til að laða slík tækifæri til Fjarðabyggðar þarf einnig að tryggja að góð skrifstofuaðstaða sé til staðar. Með því að efla samstarf við frumkvöðla og fjárfesta til að byggja upp sambærilega aðstöðu í fleiri bæjarkjörnum sköpum við fleiri tækifæri og styrkjum atvinnulíf svæðisins til lengri tíma. Slík uppbygging eykur einnig líkur á að fleiri opinber störf verði staðsett á svæðinu.

Uppbygging og endurnýjun gamla barnaskólans á Eskifirði hefur skapað ný tækifæri til að efla þekkingarstörf í sveitarfélaginu. Með samstarfi háskólans við sveitarfélagið og samfélagið er fyrirhugað að opna Rannsóknasetur Háskóla Íslands í húsinu. Slík uppbygging er afar jákvæð fyrir svæðið, styrkir þekkingarumhverfið þess og skapar ný störf. Einnig er ánægjulegt að sjá rannsóknastarfsemi Háskóla Íslands á Breiðdalsvík, sem hefur þegar fest rætur. Þessi dæmi sýna vel hvaða tækifæri felast í því að byggja upp góða vinnuaðstöðu og þekkingarstörf víða um Fjarðabyggð.

Höfundur skipar 10. sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð