8. apríl

Vil leggja mitt af mörkum fyrir Fjarðabyggð

Diddi

18. sæti

Ég hef tekið ákvörðun um að skipa mér á lista Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð, í 18. sæti. Það geri ég af einfaldri ástæðu; ég vil leggja mitt lóð á vogarskálarnar til að styðja við það góða starf sem unnið hefur verið undir forystu flokksins og áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins.

Þegar Sjálfstæðisflokkurinn fór í meirihluta árið 2024 var staðan allt annað en einföld. Það er ekki sjálfgefið að taka við stjórnartaumum þegar helmingur kjörtímabils er liðinn og verkefnin ærin. Það var heldur engin kjörstaða. En þegar aðrir höfðu brugðist var stigið fram og ábyrgð tekin.

Það hefur skilað árangri.

Með ábyrgð, festu og ástríðu fyrir samfélaginu hefur tekist að snúa rekstrinum við, styrkja grunninn og skapa svigrúm til uppbyggingar. Það er ekki sjálfsagt, það er afrakstur markvissrar vinnu og skýrrar forystu.

Ég þekki úr atvinnulífinu hversu mikilvægt það er að hafa traustan rekstur og skýra stefnu. Það er forsenda þess að hægt sé að vaxa og byggja upp til framtíðar. Sú nálgun hefur einkennt starf meirihlutans í Fjarðabyggð og það er leið sem ég vil styðja.

Tækifærin í Fjarðabyggð eru gríðarleg. Hér eru náttúrulegar aðstæður sem skapa fjölbreytt atvinnutækifæri og sterkan grunn til verðmætasköpunar. Það hefur verið rétt gert að horfa til þessara tækifæra af festu og metnaði.

Þar má nefna aukna áherslu á uppbyggingu tengda olíuleit og vinnslu á Drekasvæðinu, frekari þróun laxeldis og áframvinnslu sjávarafurða, auk markvissrar uppbyggingar hafnaraðstöðu til að styrkja samkeppnisstöðu okkar í vöruflutningum til framtíðar. Þetta eru stór og mikilvæg verkefni sem geta haft afgerandi áhrif á þróun samfélagsins.

Við megum ekki missa sjónar af þessu.

Við erum ekki komin á leiðarenda. Við stöndum í miðri á en við erum á réttri leið.

Það skiptir máli að halda áfram af sömu festu, með skýra sýn og vilja til að byggja upp sterkara samfélag. Ég vil leggja mitt af mörkum til þess verkefnis.

Förum áfram.

Fulla ferð.