15. apríl

Ný stjórn fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð kjörin

Aðalfundur fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð fór fram í golfskálanum á Reyðarfirði þriðjudaginn 7. apríl síðastliðinn.

Á fundinum var Dýrunn Pála Skaftadóttir kjörin formaður stjórnar. Með henni voru eftirtalin kjörin í stjórn: Guðgeir Fannar Margeirsson, Haraldur L. Haraldsson, Indriði Margeirsson, Jóhanna Sigfúsdóttir, Karl Indriðason og Sindri Sigurðsson.

Til vara í stjórn voru kjörin: Bryngeir Ágúst Margeirsson, Friðþjófur Tómasson, Heiðar Antonsson, Húnbogi Sólon Gunnþórsson og Tanja Tómasdóttir.